Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Þórhalla Ásgeirsdóttir
  • Netfang: torhalla@gmail.com
  • Staður: Akureyri
  • Heimilisfang: Buggðavegur 114
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: í fæðingarorlofi eins og er
  • Hjúskaparstaða: í sambúð

Atburðarteljari

nýtt útlit

16. apríl 2007 klukkan 16:42
var að breyta útlitinu á síðunni og er bara nokkuð sátt, nema hvað myndin efst verður rosalega stór ;P

páskarinir eru annars búnir að vera yndislegir, Arnór var bara í fríi og allt, Júlía Sól fekk eimitt að kynnast pabba sínum um páskana svo nú má hann líka hafa hana, hún er alveg ótrúleg mömmustelpa vill gjörsamlega bara vera hja mér hehe og það er orðið svoltið langt síðan hún byrjaði á þessu, gáfað barn að fatta að mamma sín er lang best 2 og hálfsmanaða :D
En það er ekki mjög einfalt alltaf, því það er alls ekki létt að setja hana í pössun svo ég geti farið og gert eitthvað, því hún stendur bara á orginu, svo kem ég heim og tek hana þá er barasta ekkert að henni ;P ótrúleg

en við mæðgur erum að spá í að koma suður um mánaðarmótin, Ingunn og Arna Dögg koma líklega með okkur þá, verður gaman að sjá hvort þær litlu verði ekki bara góðar á leiðinni, Júlía Sól sefur yfirleitt alltaf bara í bílnum en þetta er náttúrulega svoltið langt ;P en markmiðið er að hitta sem flesta sem mig langar að hitta, fara til læknis, kaupa mér fot, kaupa föt á Júlíu og hafa það gott :)

á eftir er ég að fara í ætthvað lúxus andlitsbað, litun og plokkun og læti í abaco, minn ástkæri kom einn daginn bara heim með gjafarbréf í dekur, bara æðislegur :)

en jæja beverly hills er að byrja, má sko ekki missa af því ;P
vildi bara vígja nýja útlitið á síðunni ;)

komin tími til að blogga??

19. mars 2007 klukkan 16:13
þar sem ég er búin að vera afar upptekin í að skipta um bleiur þvo föt, laga til, gefa dóttur minni að drekka og allt þetta fjölskyldu heimilisstúss þá hef ég ekki gefið mér tíma til að blogga en núna finnst mér alveg upplagður tími til að skella einu bloggi inn þar sem allt er hreint og fínt ekkert skemmtilegt í sjónvarpinu og Júlía Sól steinsofandi :)

það er ýmislegt búið að gerast hjá mér seinasta mánuðinn, helt skírn 10 mars og fekk litla snúlla nafnið Júlía Sól :) skírnin gekk svo bara mjög vel voða fín veisla hja Þórunni mömmu Arnórs :)

Júlía Sól stækkar og stækkar með hverjum deginum og brosir yfirleitt alveg út í eitt algjört yndi, en hún lætur sko heyra í sér ef það er eitthvað sem henni líkar ekki hehe

ég er búin að fá nokkra daga til að spóka mig með vagninn ekki slæmt það en svo kom bara þetta brjálaða veður og snjór og litla fekk hita og kvef, svo ég hef bara verið inni núna í samtals 3 daga... það er ekki gott fyrir heilsuna er nánast farin að gleyma hvernig heimurinn lítur út fyrir utan þessa íbúð :O

páskarir eru svo alveg að koma, fekk mitt fyrsta páskaegg í gær, og botnaði ekkert í málshættinum piff en þrátt fyrir það var mjög gaman að fá páskaegg, í Noregi eru enginn almennileg páskaegg bara svona brefpáslaegg sem þú getur fylt með bland í poka nammi, voða ómerkilegt, man hvað ég saknaði páskaeggjana í fyrra ;P spurning hvort ég fái eitthvað þetta árið annað en svona pínulítil með einum málshætti inn í.. en þau eru alveg janfn góð :D

en jæja Júlía Sól er vöknuð svo ekki verður þeta lengra í bili ;)

9. febrúar

09. febrúar 2007 klukkan 21:32
tíminn líður ótrúlega hratt, þótt allir dagar í lífi mínu eins og er ertu eins, þá finnst mér samt alltaf vera föstudagur, alveg merkilegt hreint ...

í dag fór ég í litun og klippingu það var sko aldeiliss gaman, hef ekki farið í litun í meira en ár, svo þetta var ágætis tilbreyting :) mamma var svo yndisleg að passa fyrir mig, skrítið að fara í svona langan tíma frá litlu, er náttúrulega nánast búin að vera hja henni 24/7 síðan hún fæddist ! en gott að fara að gera eitthvað fyrir sjálfan sig líka :D

svo erum við búin að ákveða hvenar við skírum það verður þann 3 mars, en hvað skvísan á að heita er hins vegar hrikalega erfitt að ákveða, er farin að hallast af því að við eigum eftir að draga nafn kvöldið fyrir skírnina eða eitthvað !

Arnór er að kafna úr vinnu þessa dagana, mætir 8 á morgnana og kemur heim um miðnætti, svo við mæðgur eru bara einar heima yfirleitt, sem er svo sem ágætt, vonandi fer þetta samt eitthvað að minka hja kallinum ...

um seinustu helgi komu ylfa,telma og kristrún og það var sko aldeilis gaman að hitta þær, gerði mer grein fyrir því hversu hrikalega mikið ég sakna þeirra! myndi gera ansi mikið til að fá þær til mín aftur ...

annaðkvöld erum við svo að fara út að borða með arnórs fjölskyldu, afi hans er að fara að halda upp á afmælið sitt og byður bara allrir fjölskyldunni út að borða, sem verður örugglega voða fínt :D

en nú atla ég að halda áfram að horfa á O.C !

bless í bili

netið komið loksins :)

28. janúar 2007 klukkan 23:35
jeijj ég er loksins komin með netið svo ég get orðið nörd á ný ;p er samt aðaleg að gera eitthvað fyrir barnalandsíðuna http://barnaland.is/barn/55440

það tók samt ágætis tíma og vesen að fá þetta net, en núna erum við með netið og komin með heimasíma og skjáinn :) en ég kvet alla til að hringja einhverntíman í heimasímann minn ;)

en það sem er helst í fréttum er að ég fann k-ið mitt ! ég er enþá alveg furðulostinn, fyrir þá sem ekki vita þá týndi ég k-inu á tölvunni minni fyrir svona 2 árum heima hjá ylfu og erum við búnar að gera dauðaleit heima hja henni milljónsinnum, svo byrtist k-ið bara á gólfinu herna heima áðan, WTF !  en ég er alveg himinlifandi, því nú lítur talvan alveg út eins og ný :D

annars er bara fínt að frétta her hja litlu fjölskyldunni, litla snúlla er bara algjört yndi, hefur reyndar tekið upp á því að vaka aðeins meira á næturnar en daginn en það er samt allt að koma, henni hefur líka verið eitthvað illt í maganum en ég held að það se allt að lagast líka :) fórum í fyrsta skipti út með hana í gær í heimsókn til mömmu hans arnórs og svaf hún bara alla fyrstu heimsóknina sína af sér ;p
Arnór er svo að fara að vinna fyrir fullt og allt núna í febrúar og þá verðum við mæðgur bara einar heima, en ef veðrið atlar að halda áfram að vera hiti þá getum við farið að fara út í vagn í göngutúra og svona :D það verður nú doldið gaman:)

aðalvandamálið svo á þessu heimili er að finna nafn á þessa elsku, aldrei hefði mer dottið í hug að þetta væri svona erfitt, er ekki frá því að hún verði bara nafnlaus alltaf, en maður fær víst sekt ef maður er ekki búin að skíra barnið innan 6 mánaða, 1000 kr á dag takk fyrir..svo við verðum að fara að finna eitthvað út úr þessu, er samt búin að lesa nafnabókina 2-3 sinnum og hjálpar það enganveginn .. humm

en langaði bara að bloggi i tilefni þess að ég se komin með netið :)

litla sæta skvísan mín er fædd :D

08. janúar 2007 klukkan 23:10
lítla prinsessan mín fæddist 3 janúar og var tæpar 12 merkur og 49 sentimetrar og er sko algjört æði ótrúlega róleg og góð, langaði bara að láta vita af því er ekkert með netið heima og fer voða lítið út þessa dagana er bara heima með litlu snúllu enda svka frost úti alltaf núna

lita skvísa

setti eina mynd inn í albúm þanna uppi ef þessi sést ekki :)

..

31. desember 2006 klukkan 01:13
jólin eru búin að vera frábær :) fekk alveg helling í jólagjöf og var ánægð með allar gjafirnar sem er bara frábært :D bjóst samt aldrei við að fá svona mikið að fjöfum en það er bara gaman :D

svo átti ég afmæli annan í jólum sem var bara gaman, fór í mat til ommu og afa og hafði smá kaffi heima fyrir þá sem mundu eftir mer sem voru alveg nokkrir :) gat meira að segja í þetta sinn boðið upp á kaffi því við fengum kaffivel í jólagjöf :D

mamma er svo flutt aftur til akureyrar og er mjög gott að hafa gömlu herna :) serstaklega þar sem ég hef ekki neitt að gera þessa dagana nema bíða eftir litla krílinu, vá hvað ég kann ekki að hafa ekkert að gera !

ég er svo virkilega að springa þessa dagana og tel eiginlega bara niður dagana þanngað til barnið á að koma, enda getur það komið þá og þegar, en bara einn dagur eftir að þessu ári svo vonandi bíður það allavega eftir því :)
ég er svo farin að dunda mer við að gera heimasíðu fyrir barnið hef náttúrulega ekkert nema tíma er rett byrjuð :) slóðin er http://barnaland.is/barn/55440 fyrir þá sem vilja skoða en síðan verður náttla mest spennandi þegar barnið er fætt :D en það er samt lykilorð svo þið verðið að senda mer póst :D

á morgun förum við til húsavíkur að fagna nýju ári með fjölskyldunni hans arnórs :) og verður það örugglega bara gaman nema það að ég er mörg tonn á þyngd og er að verða soldið þreytt  ;P

en mig langaði bara að þakka fyrir árið sem er að líða og
GLEÐILEGT NÝTT ÁR !! :D:D


Gleðileg jól :)

23. desember 2006 klukkan 17:24

já þá er bara komið af því jólin á morgun:) það er náttúrulega ekkert nema æðislegt :D

ég er búin að fá út úr öllum prófunum og lægsta einkunninn mín var 8 svo ég er bara mjög sátt með það :D

núna er ég bara í vinnunni, voða rólegt er her bara ein og verð til 3 :) svo ég losna alveg við skötuna og alla lyktina sem henni fylgir eða svona losna við mestu lyktina ;P

og omg á eftir að kaupa jólagjöf handa Arnóri og jólin eru á morgun og ég er í vinnunni ! veit barasta ekkert hvað ég á að gefa honum... úff hlít að finna eitthvað í kvöld eða ég verða að finna eithvað í kvöld...
og svo á ég ekkert til að vera í á jólunum, á enginn fín föt sem passa á mig og tími ekkert að kaupa mer einhver föt sem ég passa ekkert í eftir 3 vikur ... úff ég er í tómu jólarugli ... en þetta hlítur að reddast :)

seinustu nótt eignaðist Ingunn litla stelpu og ég fór í smá heimsókn til þeirra mægna í gær og vá hvað hún var pínu lítil og sæt og eittvað svo fullkomin og krúttleg :) Ingunn mín  innirlega til hamingju með þessa fullkomnu prinsessu :D

í gærkvöldi sátum við systkynin og Arnór og spiluðum sem var mjög gaman, einar endaði samt sem meistari, en vá hvað þetta voru erfiðar spurningar hef aldrei heyrt annað eins, en þetta var mjög gaman :)

dagurinn í dag er svo fullbókaður að jólaallskonar :) kaupa jólagjafir, pakka inn, senda jólakort, fara með jólapakka og gera jólahreingerningu og margt fleira :)

GLEÐILEG JÓL allir saman og hafið það öll sem best um jólin :D
og ekki gleyma ég á svo afmæli annan í jólum ;) hehe


Búinn í prófunum húrra fyrir því :D:D

12. desember 2006 klukkan 15:58
já mikið rétt eg er loksins búin í prófunum var að klára seinasta áðan :) er svo fegin að getað pakkað niður öllu skóladótinu mínu og þurfa ekkert að taka það upp neitt á næstunni :D:D svo bíð ég bara spennt eftir að fá út úr prófunum, er samt búin að fá út úr tveimur fekk 9 í líffæra og lífeðlisfræði og 8 í næringarfræði er bara nokkuð sátt með það :D

núna geta jólaskreytingar og jólabakstrar farið að hefjast á mínu heimili og  kannski jólahreingerning fljótlega líka :) er búin að setja saman barna rúmið og það er ekkert sma fallegt og með himnasæng og öllu :) er bilað ánægð með það er svo að fara setja upp skiptiborðið á næstu dögum og við erum búin að fá bilað' flottan vagn og allt ég er svo ánægð :D:D

en svo þarf ég náttúrulega að vinna líka er að fara í vinnuna á eftir :) mer líkar bara fínt þar, er bara í rólegheitunum að sauma og afgreiða :)

humm seintu dagar eru nú búnir að fara mikið í lærdóm eða að þykjast vera að læra, kannski meira í að horfa á prison break, one tree hill og O.C ;P bilaðir þættir þar á ferð :)

fór reyndar í bíó í fyrradag með anítu á geggjað krúttlega mynda þanna  the holiday :) gerðist reyndar ekkert mikið en var samt eikkað svo æðisleg :)

svo eru allir búnir að eiga afmæli seinustu daga og eiga afmæli næstkomandi daga, hvað er málið með að allir eigi afmæli í desember...

en henna ég atla að fara að versla inn og fara svo að vinna svo við heyrumst bara :)

hafið það gott

25 dagar til jóla

29. nóvember 2006 klukkan 18:54
vildi bara minna alla á að það eru aðeins 25 dagar til jóla !!!! sem segir okkur það að það eru aðeins 27 dagar í afmælið mitt :) þetta er bara allt að bresta á tíminn gjörsamlega flýgur áfram ...

og þessi helvítis próf eru að fara að byrja er meira að segja að fara í fyrsta núna bara eftir 20 mínútur er ekkert búin að læra því ég kann ekki að læra undir svona heimskuleg próf er sem sagt að fara í skirflegt próf í verklegri hjúkrun ! djöss rugl... svo er próf á morgun og svo 5,7,8 og 12 desember og ég hef svo enga þolinmæðiu til að læra undir þessi blessuðu próf arg ...

svo er ég komin með vinnu, var að vinna smá í gær aðalega að læra inn á þetta dæmi, þórunn bjó bara til þægilega vinnu handa mer sem ég ræð eiginlega vinnutímunum sjálf og er bara í afgreiðslu og sauma í handklæði og svona rosa rólegt og fínt :D er ánægð með þetta get þá unnið mer inn einhvern pening :D

og svo má ekki gleyma að minnast á að minn frábæri stóri bróðir verður 22 ára á morgun og bíst ég ekki við að blogga þá neitt svo ég atla bara óska honum her mer til hamingju með það :D:D:D

en henna er farin í skólan

hafið það gott

27. nóvember 2006 klukkan 23:57


er komin í auglýsingarbransann og held að þetta se málið :)
hentar mer vel að auglýsa áfengi núna ;P en legg til að allir testi þennan bjór,á víst að vera svaka góður ;)

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit